Kópahvoll stækkar
Skipulagið verður með þeim hætti að yngri börnin verða í núverandi húsnæði við Bjarnhólastíg og eldri deildir í Kópahvoli við Skólatröð.
Húsnæðið við Skólatröð mun rúma um 60 leikskólabörn. Framkvæmdir ganga vel og er áætlað að þeim verði lokið í nóvember. Áhersla er á góða hljóðvist í nýja húsnæðinu sem og lögð verður áhersla á umhverfis- og efnavottun á húsgögnum samræmi við heildarásýnd hússins.