Um foreldraráð í Lögum um leikskóla

11. gr.

Foreldraráð.

Kjósa skal foreldraráð við leikskóla og skal leikskólastjóri hafa frumkvæði að kosningu í ráðið. Í foreldraráði sitja að lágmarki þrír foreldrar. Skal kosning til foreldraráðs fara fram í september á ári hverju og skal kosið til eins árs í senn. Foreldraráð setur sér starfsreglur. Leikskólastjóra ber að starfa með foreldraráði. Leikskólastjóri getur sótt um undanþágu til sveitarfélags um stofnun foreldraráðs ef gildar ástæður eru fyrir hendi, svo sem vegna fámennis í leikskóla.

Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskóla og nefndar, sbr. 2. mgr. 4. gr., um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi.

Foreldraráð Kópahvols 2025-2026

Starfsreglur foreldraráðs Kópahvols 2026

Ágústa Steinunn Loftsdóttir  asl@efla.is

Hanna Kristín Eyjólfsdóttir  hanna@rafros.is

Rakel Elíasdóttir  rakelel@gmail.com

Halla Ösp Hallsdóttir leikskólastjóri hallaosp@kopavogur.is

 

Fundargerð frá 2.apríl 2025

Fundargerð frá 29. janúar 2026