Aðlögun barna
Í upphafi leikskólagöngu barna eru forráðamenn boðaðir í samtal við leikskólastjóra og deildarstjóra viðkomandi deildar. Í þessu samtali er m.a. óskað eftir almennum heilsufarsupplýsingum um barnið, upplýsingum um málþroska og boðskiptafærni þess og fjölskyldusögu. Forráðamenn tvítyngdra barna eru einnig beðnir um að svara spurningarlista um málþroska og boðskiptafærni barnsins á móðurmáli þess.
Aðlögun er sá tími þegar barnið kynnist starfsmönnum, börnum og umhverfi leikskólans. Með góðum aðlögunartíma aukast tengsl milli foreldra/forráðamanna og starfsmanna og grunnur lagður að áframhaldandi samstarfi.
Markmið aðlögunar er að létta börnum aðskilnað við foreldra/forráðamenn sína og aðlagast leikskólanum. Með þátttökuaðlögun gefst foreldrum gott tækifæri til að upplifa starf leikskólans af eigin raun og í leiðinni skapa traust milli heimilis og skóla.
Aðlögun er ekki einungis fyrir barnið, heldur einnig tækifæri fyrir foreldra/forráðamenn til að kynnast starfsmönnum leikskólans, starfinu og öðrum foreldrum/forráðamönnum. Við vonumst til að foreldrar/forráðamenn njóti þess að vera með okkur í leik og starfi á aðlögunartíma barnsins.
Áætlun aðlögunar er sem hér segir:
Dagur 1. Dvalartími frá kl. 9:00 - 11:30/12:00
Barn og foreldrar/forráðamaður eru saman í leikskólanum allan tímann og fara heim eftir hádegismat.
Dagur 2. Dvlartími frá kl. 9:00 - 11:30/12:00
Barn og foreldrar/forráðamaður eru saman í leikskólanum allan tímann og fara heim eftir hádegismat.
Dagur 3. Dvalartími frá kl. 9:00 fram yfir hvíld
Barnið tekur þátt í leik og starfi, borðar hádegismat, fer í hvíld og er sótt þegar það vaknar. Forldri/forráðamaður er með barninu fyrst um sinn og kveður svo.
Dagur 4. Dvalartími er vistunartími barnsins
Mælt er með að hafa barn ekki lengur en til kl.15:00 í leikskólanum þennan dag.
Foreldri/forráðamaður tekur þátt í öllu starfi leikskólans á meðan á þátttökuaðlögun stendur. Þessi áætlun er til viðmiðunar, það er misjafnt eftir einstaklingum hvernig aðlögun gengur og þurfa sum börn á skemmri/lengri aðlögunartíma að halda en það getur verið háð aldri barnsins.