Markmið með matstofu er m.a..
að börn hafi val um hvar þau sitja
að börnum líði vel í matmálstíma
að vinir geta setið saman
að taka tillit til þess að einstaklingar geta/vilja ekki borða hvað sem er
að taka tillit til fjölbreytileika - fjölbreytilegra þarfa og óska
að börn læri að þekkja eigið magamál
Hlaðborð getur stuðlað að valdeflandi aðstæðum fyrir börn ef þeim gefst tækifæri til að velja sjálf, hvað af hráefninu/matnum þau vilja.
Sérhvert barn getur sett saman eigin máltíð á diskinn sinn, hvað það vill eða þorir að prófa hverju sinni. Meiri líkur er á að barn borði vel sem velur matinn sjálft, finnur að því er treyst til verksins og öðlast meiri trú á eigin getu til að stjórna, læra að þekkja og hlusta eftir eigin magamáli.
Þá læra börnin einnig að ; bera virðingu fyrir mat, taka tillit til annarra, hafa þolinmæli við að bíða eftir að röðin komi að þeim og eiga samræður við skólafélaga undir hollri og ljúffengir máltíð.